Útilega Rauðskinna í Hverahlíð
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 24. mars 2009
Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna árið 2009, en að þessu sinni ætlum við í Hverahlíð við Kleifarvatn.
Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 27.mars, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 29.mars. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.
Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið. Stelpurnar fengu með sér símaskrá heim áðan með öllum símanúmerunum.
Afgangurinn af foreldrabréfinu, ásamt útbúnaðarlista til viðmiðunar, má sjá með því að ýta á “meira”
Næstu helgi, 27.-29.mars, verður útilega Rauðskinna í Hverahlíð, skála í eigu Hraunbúa við Kleifarvatn. Skálinn er af eldri kynslóðinni, en er þó nýuppgerður. Í honum er hvorki rennandi vatn eða rafmagn, en til að leysa þann vanda er kamar á staðnum, ásamt dýrindis kabyssu og gaseldavél og nóg er af vatni í Kleifarvatni.
Morgunmatur er ekki innifalinn í verðinu, svo stelpurnar þurfa að muna eftir honum. Betra væri að vera ekki með morgunmat sem þarf að geymast í kæli, en kæliaðstaða er mjög lítil á staðnum. Af eigin reynslu getur sveitaforingi sagt að jógúrt, safi og þess háttar geymist ágætlega í bakpoka yfir helgi:)
Mikilvægt er að stúlkurnar mæti vel klæddar til útivistar, í góðum skóm og með regnföt, því farið verður í hike. EInnig þurfa þær að hafa með sér lítinn bakpoka fyrir hikeið og vatnsflösku. Gott er að mæta með skátaklútinn og með skátapeysu, bol eða skyrtu.
Bannlisti: Gallabuxur og bómullarsokkar eru ekki vel séðar. GSM-símar, iPodar og önnur raftæki (nema vasaljós og myndavélar) eiga ekki erindi í útileguna, en sveitaforingi verður með síma ef eitthvað kemur uppá. Einnig er gos, snakk og nammi bannað. Þó er leyfilegt að taka með sér plötu af hreinu súkkulaði í hike-nesti.
Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna,
Kolfinna (kolfinna(hjá)hraunbuar.is, 8465685) og Steinunn
Útbúnaðarlisti (til viðmiðunar)
bakpoki, svefnpoki, náttföt, inniskór, koddi, skátabúningur, buxur, bolir, peysur, nóg af sokkum!, ullarsokkar, nærföt, ullarnærföt, hlý náttföt, húfa, vettlingar, trefill, góðir skór til að ganga í, úlpa, hlífðarbuxur, lítill bakpoki fyrir hike, vatnsbrúsi, vasahnífur, vasaljós, stílabók, skriffæri, spil, eldspýtur, hike nesti (hreint súkkulaði), morgunmatur x2, tannbursti, tannkrem, greiða, þvottapoki, einstaklingsbundin lyf etc…
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 24. mars 2009 kl. 6:56 e.h. og er skráð í flokkinn Útilegur, Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


