Skráning í útilegu
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 16. mars 2009
Við viljum minna Rauðskinnur á það að skráning í útileguna í Hverahlíð 27.-29.mars er hafin og stendur til 24.mars, hægt er að skrá sig í Hraunbyrgi og hjá sveitaforingja.
Verðið að þessu sinni er 2000 krónur, en best er að ganga frá greiðslunni um leið og skráning fer fram, eða í síðasta lagi á fundinum 24.mars. Innifalið í verðinu er allur matur nema morgunmatur, svo stelpurnar þurfa að koma með hann sjálfar fyrir báða dagana.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband (Kolfinna: s.8465685, kolfinna(hjá)hraunbuar.is)
Sjáumst á fundinum á morgun,
Sveitaforingjar
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 16. mars 2009 kl. 5:25 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


