Óskasteinar
Skrifað af Gunnur Líf Gunnarsdóttir þann 11. mars 2009
Fyrir tveimur vikum síðan lögðu litlir drekaskátar af stað í leiðangur. Það var mikil rigning og mikið rok en drekaskátarnir létu það ekki á sig fá. Í kringum Hraunbyrgi trítluðu þeir með poka í annarri hendi fyrir rusl og hina hendina lausa ef þeir skyldu nú rekast á flottan stein. Stein sem gæti verið þeirra óskasteinn. Eftir mikla leit fundu allir skátarnir óskasteinanna sína. Í leiðinni var búið að tína upp allt rusl sem fyrir fannst í kringum skátaheimilið og næsta nágrenni. Góðverk frá drekaskátunum til Hafnafjarðarbæjar :). Þegar allir voru svo komnir inn heilir að húfi var hitað heitt skátakakó.
Vika leið í næsta fund. Foringjar Drekaskátanna voru búnir að passa óskasteinana afskaplega vel á þeim tíma. Nú var komið að því að láta óskasteinunum líða vel. Til þess var notuð ull. Þæfðu skátarnir ull í kringum steininn sinn og á meðan það var gert mátti aðeins hugsa góðar hugsanir. Með mikilli vinnu og einbeitingu náðu allir drekaskátarnir að þæfa ull í kringum steinninn sinn og gera hann svaka flottan. Síðan valdi hver og einn hvaða ósk ætti að fara á steininn. Þær voru skrifaðar niður og geymdar á góðum stað.
Önnur vika leið þanngað til að óskasteinarnir fóru að gegna hlutverki sínu. Á síðasta fundi voru steinarnir hengdir upp í glugga drekaskátaherbergisins með óskina í bandi.
Öruggar heimildir eru fyrir því að tvær óskir hafa nú þegar ræst.
Kær kveðja
Gunnur og Sunna
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 11. mars 2009 kl. 2:19 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


