mars 31st, 2009 by Smári Guðnason
| Föstudagur, 17. apríl 2009 8:00 e.h. | to | Sunnudagur, 19. apríl 2009 3:00 e.h. |

Helgina 17. – 19. Apríl nk.ætla Riddarar að fara í útilegu í Vífilsbúð í Heiðmörk. Vífilsbúð er í eigu skátafélagsins Vífils í Garðabæ. Á staðnum er kamar, rafmagn, ísskápur og ýmislegt fleira. Mæting verður í skálann kl. 20 og er mjög mikilvægt að allir mæti saddir.
Dagskrá
Mæting er í Vífilsbúð kl. 20:00 á föstudeginum – mikilvægt að allir séu búnir að borða kvöldmat.
Útilegunni lýkur kl 15:00 á sunnudeginum og eru foreldrar beðnir um að sækja krakkana sína þá í Vífilsbúð.
Farið verður í hellaferð á laugardeginum og er því mikilvægt að allir mæti með hjálm.
Kostnaður
Útilegugjald er 3.500 kr. Innifalið í því er gistingin í Vífilsbúð, öll dagskrá, hádegismatur báða dagana og kaffitími, kvöldmatur og kvöldkaffi á laugardeginum. Skráning fer fram hjá sveitarforingja (smari@hraunbuar.is) og hægt er að greiða með því að greiða á skrifstofu Hraunbyrgis eða millifæra á reikning nr. 0327-26-7029, kt. 640169-7029 (þeir sem gera það eru vinsamlegast beðnir um að láta senda tilkynningu á netfangið smari@hraunbuar.is ). Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 14. apríl. Athugið að strákarnir þurfa sjálfir að koma með morgunmat.
Útbúnaður
Meðfylgjandi þessu bréfi er almennur útbúnaðarlisti, sem gott er að geyma og hafa til viðmiðunar. Sérstaklega er mikilvægt að strákarnir komi með hlý föt og góða skó til að ganga í. Ekki er ætlast til þess að strákarnir komi með sælgæti eða gos.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Smári Guðnason, s: 846-4578, smari@hraunbuar.is
Leiðarlýsing
Leiðarlýsing: Best er að keyra Kaldárselsveginn og beygja þaðan inná Elliðavatnsveg (Flóttamannaleiðina) og halda þar áfram þar til komið er að Heiðmerkurvegi (hjá Maríuhellum). Beygt er inn á Heiðmerkurveginn og haldið áfram þar til komið er að grillaðstöðunni.
Útbúnaðarlisti
Bakpoki
Svefnpoki
Koddi
Náttföt
Inniskór
Skátabúningur
Buxur
Bolir
Peysur
Sokkar
Ullarsokkar
Nærföt
Húfa
Vettlingar
Trefill
Úlpa / stakkur
Hlífðarbuxur
Lítill bakpoki
Hitabrúsi
Vasahnífur
Vasaljós
Hike nesti (hreint súkkulaði)
Morgunmatur
Tannbursti
Tannkrem
Bursti/greiða
Þvottapoki
Klósettpappír
Einstaklingsbundin lyf
Óæskilegt að hafa með sér…
Gallabuxur
Bómullarsokkar
GSM-símar
Rafmagnstæki
Nammi, gos og snakk
Flokkur: Almennt, Viðburðir |
Engin svör »
mars 31st, 2009 by Smári Guðnason
| Sunnudagur, 5. apríl 2009 |
| 6:00 e.h. | to | 7:00 e.h. |
Stundin okkar verður í skátabúningi næsta sunnudag. Um 70 drekaskátar úr Kópum tóku þátt og var haldin kvöldvaka þar sem Smári Hraunbúi spilaði á gítar.
Flokkur: Viðburðir |
Engin svör »
mars 31st, 2009 by Dagný Vilhelmsdóttir
Á morgun fer Ds.Castor í sund og viljum við minna þá sem málið varðar að mæta með sund dót á fundinn. Við ætlum í Sundhöllina ef að við erum heppin höfum við laugina nokkurn vegin út af fyrir okkur en æfingum þar lýkur tuttugu mínútur yfir sjö.
Mæting klukkan sjö í Hraunbyrgi.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja Dagný og Sverre
Flokkur: Ds. Castor, Ds. Pollux |
Engin svör »
mars 30th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Okkur langar til að þakka Rauðskinnum fyrir stórskemmtilega útilegu í Hverahlíð síðustu helgi. Þær stóðu sig allar eins og hetjur og sigruðust á nístingskulda og kolniðamyrkri eins og sönnum skátum er lagið. Þær sýndu einnig fram á mikilvægi góðrar samvinnu, bæði með því að kveikja eld og bjarga skáta í neyð.
Óskilamuni helgarinnar má nálgast í Hraunbyrgi frá og með næsta fundi.
Sjáumst hressar á morgun
Kolfinna og Steinunn
Flokkur: Almennt, Rauðskinnur, Útilegur |
Engin svör »
mars 24th, 2009 by Smári Guðnason
Hraunbúinn – fermingarblað Hraunbúa er komið út. Blaðið í ár er minna í sniðunum vegna breyttra aðstæðna. Þess vegna sáum við okkur ekki fært að birta lista yfir fermingarbörnin í blaðinu en hægt verður að nálgast þann lista á www.skataskeyti.is síðar í vikunni. Við þökkum styrktaraðilum okkar kærlega stuðninginn við útgáfu blaðsins.
Blaðið er komið hér á netið og er væntanlegt í heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði á næstu dögum.
Hraunbúinn 2009 – fermingarblað [ PDF 1,8MB ]
Flokkur: Almennt, Ds. Castor |
Engin svör »
mars 24th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna árið 2009, en að þessu sinni ætlum við í Hverahlíð við Kleifarvatn.
Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 27.mars, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 29.mars. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.
Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið. Stelpurnar fengu með sér símaskrá heim áðan með öllum símanúmerunum.
Afgangurinn af foreldrabréfinu, ásamt útbúnaðarlista til viðmiðunar, má sjá með því að ýta á “meira”
Lesa alla frétt »
Flokkur: Rauðskinnur, Útilegur |
Engin svör »