Sveitarútilega Riddara um helgina
Skrifað af Smári Guðnason þann 30. janúar 2009
Sveitarútilega Riddara fer fram í Hverahlíð um helgina. Mæting er í Hraunbyrgi kl 18:30 stundvíslega og verður lagt af stað fljótlega eftir það. Samkvæmt veðurspánni fyrir helgina verður frekar kalt og lítilsháttar snjókoma á svæðinu og er því mjög mikilvægt að allir mæti með hlý og góð föt.
Sveitarforingjar minna á að öll raftæki eru bönnuð í útilegunni – nema myndavél og vasaljós.
Sjáumst hressir í kvöld.
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 30. janúar 2009 kl. 1:24 e.h. og er skráð í flokkinn Útilegur, Riddarar. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


