Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Dróttskáta

Skrifað af Nanna Guðrún Bjarnadóttir þann 26. nóvember 2008

DróttskátarHelgina 5. – 7. desember verður sveitarútilega fyrir Dróttskáta og verður útilegan haldin í Lækjarbotnum. Útilegan kostar 3000 kr og þarf að vera búið að greiða fyrir 4. desember.

Hægt er að skrá sig í hraunbyrgi eða í síma 824-0906 en skráningu líkur 1. desember.

Allt foreldrabréfið má sjá með því að ýta á “lesa alla frétt”

Greiða verður útileguna fyrir 4. desember, hægt er að greiða í Hraunbyrgi eða millifæra á reikning okkar:

bankaupplýsingar: 0327-26-7029 kennitala: 640169-7029

Foreldrar eiga að keyra börnin sín upp í skálann. Mæting er kl 19:00 á föstudeginum og líkur útilegunni á sunnudeginum kl 16:00 og þá má sækja skátana.

Krakkarnir eiga að koma með sinn eigin mat en á laugardeginum verður opinn pylsupottur og meðlæti verður á staðnum, þannig að þið getið komið með pylsur að borða á laugardagskvöldinu.

Hægt er að skrá sig í Hraunbyrgi eða í síma 5650900/8240906 og verður að skrá sig fyrir mánudaginn 1. desember.

Öll raftæki, símar og nammi er bannað.

Útbúnaðarlisti til viðmiðunar

· Skátabúningur (skylda koma með klút, þeir sem ekki eru vígðir fá klút í útilegunni)

· Svefnpoki og koddi

· Tannbursti

· Útiföt/hlý föt

· Aukaföt

· Gönguskór eða stígvél

· Vasaljós

Með skátakveðju,

Óli, Sverre og Ragga


Tengdar færslur:

  1. Ratleikur Ds. Castor og Ds. Pollux
  2. Næsti fundur Ds.Castor
  3. Ds.Castor
  4. Dróttskátaútilega
  5. Dróttskátaútilega

Þessi grein var skrifuð þann 26. nóvember 2008 kl. 9:16 e.h. og er skráð í flokkinn Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux, Skátamót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.