Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Dagsferð Riddara

Skrifað af Smári Guðnason þann 2. október 2008

Fyrirhugaðri vígsluútilegu sem átti að vera næstu helgi, 3.-5. október hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna óviðráðanlegra ástæðna.
Vígsla er mikilvægur partur hvers skáta og mikilvægt að skátinn upplifi hana á eftirminnilegan hátt og þess vegna hefur verið ákveðið að fara í dagsferð á laugardaginn 4. október í Heiðmörk. Farið verður í göngutúr um svæðið og að lokum verður farið í einn af þeim fjölmörgu hellum sem eru á svæðinu og vígsla skátanna fer fram.
Mæting er við grillaðstöðuna í Heiðmörk á laugardaginn kl 13.00 stundvíslega og eru foreldrar beðnir um að sækja skátana kl 17.00 við grillaðstöðuna.

Mikilvægt er að skátinn mæti klæddur eftir veðri, í fötum sem hæfa hellaskoðun, með góðan hjálm, vasaljós og nesti fyrir daginn. Boðið verður uppá heitt kakó og kex í hellinum en hver skáti þarf að hafa með sér bolla fyrir kakóið.

Leiðarlýsing: Best er að keyra Kaldárselsveginn og beygja þaðan inná Elliðavatnsveg (Flóttamannaleiðina) og halda þar áfram þar til komið er að Heiðmerkurvegi (hjá Maríuhellum). Beygt er inn á Heiðmerkurveginn og haldið áfram þar til komið er að grillaðstöðunni.


Tengdar færslur:

  1. Starfið farið á fullt
  2. Ratleikur Ds. Castor og Ds. Pollux
  3. Dróttskátaútilega
  4. Dróttskátaútilega
  5. Vinnuferð í­ Krýsuví­k

Þessi grein var skrifuð þann 2. október 2008 kl. 3:52 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Ds. Castor, Ds. Pollux. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.