Fjáröflun fyrir Landsmót – Rækjusala
Skrifað af Smári Guðnason þann 2. apríl 2008
Nú er að hefjast fyrsta fjáröflun fyrir landsmót, aðeins seinna en áætlað var.
Við ætlum að byrja á því að selja rækur. Þær koma í 2 kg pokum sem við kaupum inn á 1.600 kr. en útsöluverðið er 2.600 kr.
Þetta gengur þannig fyrir sig að þið fáið afhentan lista. Inn á hann fyllið þið út hvaða magn þið ætlið að selja og skilið listanum í Hraunbyrgi fyrir föstudaginn 11. apríl. Rækjurnar verða afhentar í vikunni eftir það.
Ekki hika við að hafa samband við starfsmann í Hraunbyrgi ef einhverjar spurningar vakna. Hægt er að koma á skrifstofuna á meðan fundir standa yfir, hringja í síma 824-0906 eða senda tölvupóst á netfangið landsmot@hraunbuar.is
Rækusala – söluyfirlit [XLS skjal]
Rækjusala – auglýsing fyrir vinnustaði [DOC skjal]
Með skátakveðju,
Foringjaráð Hraunbúa
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 2. apríl 2008 kl. 10:59 e.h. og er skráð í flokkinn Landsmót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.



