Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Aðalfundur á fimmtudaginn

Skrifað af Smári Guðnason þann 26. febrúar 2008

Hraunbúamerki stórtMinni á aðalfund Skátafélagsins Hraunbúa sem haldinn verður fimmtudaginn 28. febrúar kl 19.30.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Skýrsla stjórnar.
  • Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  • Umræður um framlagðar skýrslur.
  • Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  • Lagabreytingar.
  • Kosning stjórnar.
  • Kosning tveggja varamanna stjórnar.
  • Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  • Kosning þriggja manna í­ laganefnd.
  • Kosning þriggja manna í­ uppstillingarnefnd.
  • Önnur mál.

Úr lögum félagsins:
3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 15 ára og eldri, ef árgjöld þeirra eru í­ skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 15 ára aldri í­ félaginu ef árgjöld skátans er í­ skilum……
3.6 Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Félagsforingi, aðstoðarfélagsforingi, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í­ einu lagi. Stefnt skal að því­ að jafnan sé minnst einn stjórnarmanna kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 15 ára aldri.
3.7 Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því­ að ví­kja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í­ stjórn og annar varamaður ef annar þarf að ví­kja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í­ stjórn. Ví­ki þrí­r eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.
3.8 Verksvið stjórnar eru fjármál, húsnæðismál, umsjón með eigum félagsins, svo og öðru því­ sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í­ samvinnu við foringjaráð félagsins.

Lagabreytingarnefnd hefur skilað af sér lagabreytingartillögum fyrir fundinn og hægt er að skoða þær á PDF-sniði hér.


Tengdar færslur:

  1. Aðalfundarboð
  2. Aðalfundur
  3. Aðalfundur Hraunbúa 2011
  4. Aðalfundur
  5. Aðalfundarboð

Þessi grein var skrifuð þann 26. febrúar 2008 kl. 12:49 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.