Auglýst eftir starfskrafti
Skrifað af Jón Þór Gunnarsson þann 26. ágúst 2007
Auglýst er til umsóknar staða starfsmanns hjá Skátafélaginu Hraunbúum. í starfinu fellst
- Almennt afgreiðsla; Þjónusta við foreldra, viðhald á félagsskrá, innheimtun gjalda o.fl
- Stuðningur við skátastarfið; fylgjast með starfi flokka, halda utan um upplýsingar um viðburði á vegum félagins. Einnig er æskilegt að umsækjandi þekki nýju skátadagskránna.
- Seta í foringjaráði; Foringjaráð félagsins er skipað öllum sveitarforingjum félagsins ásamt fulltrúa stjórnar. Starfsmaður sér m.a. um að boða og fylgja eftir foringjaráðsfundum.
- Fylgja eftir umgengni; í skátunum læra börn að ganga frá á eftir sig. Því þarf þó að fylgja eftir og er starfsmaður í lykilhlutverki ásamt svetarforingja hverrar svetiar.
Umsækjandi þarf að vera
- Skáti og þekkja skátastarf
- Eldri en 20 ára
- Jákvæður
- Með ríka þjónustulund
- Metnaðarfullur og sýna ábyrgð í starfi.
Vinnutími er mánudaga til fimmtudaga á meðan skátafundir eru, 3-4 tímar á dag.
Skátafélagið Hraunbúar býður uppá góða aðstöðu við Hjallabraut 51 í Hafnarfirði. Starfsandi innanhúss er góður og umsækjanda gefst kostur á að vinna í þroskandi og áhugaverðu umhverfi með börnum á aldrinum 9-18 ára.
Nánari upplýsingar gefur Inga María í síma 565-0901 eða með tölvupósti á ingamaria@hraunbuar.is.
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 26. ágúst 2007 kl. 8:45 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.



19. september 2007 kl 8:02 e.h.
Smári, þú ert sætur gaur.
19. september 2007 kl 8:11 e.h.
Ójá!
19. september 2007 kl 8:45 e.h.
í‰g er alveg þokkalega sætur gaur!