Sumardagurinn fyrsti
Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 17. apríl 2007
Eins og allir vita þá er sumardagurinn fyrsti núna á fimmtudaginn. Að sjálfsögðu verður skátafélagið með glæsilega dagskrá á Thorsplani.
Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði
Kl.11 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni. Keppt er í 7 aldursflokkum frá 6 ára aldri upp í 21 árs og eldri. Allir keppendur fá verðlaunapeninga og sigurvegarar flokka fá bikara.
Kl. 11:00 Gönguferð á Helgafell með Ferðafélagi íslands. Gangan hefst við bílastæði við Kaldársel. Þátttaka ókeypis.
Kl. 12:30 Skátamessa í Víðistaðakirkju.
Kl. 13:15 Skrúðganga frá Víðistaðakirkju að Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar.
Kl.13:30 -16 Fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjá Skátafélagsins Hraunbúa. Skemmtidagskrá á sviði og reistar skátabúðir í miðbænum þar sem gestir og gangandi geta tekið þátt í leik og þraut.
Dagskrá Hestamiðstöðvar íshesta, Sörlaskeiði 26
í˜ Kl. 13 og 15 Klukkustundar hestaferð með íshestum.
Verð 1.500 kr. í hestaferð. Teymt undir börnum á milli kl.13:30 og 15:30 án endurgjalds.
í˜ Kl. 14:30 og 16:30 Hestur járnaður.
í˜ Kl. 13:00 – 17:00. Kökuhlaðborð í Jósölum. Verð 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 6 – 15 ára og frítt fyrir yngri en 6 ára.
í˜ Kynning á sumarreiðskóla íshesta.
í˜ Kl.14 Gæludýrakeppni í flokkum í samstarfi við Dýraland og Dýralæknastofuna í Garðabæ: Hundar, kettir, nagdýr, fuglar og hestar. Hægt er að skrá dýr til keppni í síma 555-7000. Skráningargjald 500 kr.
Verðlaun verða veitt fyrir hvern flokk og allir keppendur fá viðurkenningarskjöl.
Kl.11-21 Hafnarborg, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar er opin lengur á fimmtudögum. Til sýnis eru tískuljósmyndir franska ljósmyndarans Gilles Bensimon. Aðgangur ókeypis.
í˜ Kl. 16 sýnir franski leikhópurinn TURAK sýningu sem er mitt á milli þess að vera brúðuleikhús og hefðbundið leikhús. Aðgangseyrir aðeins 500 kr. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna.
Sýningin er hluti af Porquoi pas, frönsku vori á íslandi.
Kl. 11-21 Byggðasafn Hafnarfjarðar að Vesturgötu 8 er opið lengur á fimmtudögum. Aðgangur ókeypis.
Kl.12-16 Opið hús í Þjónustuveri Hafnarfjarðar að Strandgötu 6. Kynning á ferðaþjónustu og afþreyingarmöguleikum. Kíkið í kaffi og kleinur.
Kl. 12-17 Fjörukráin, Strandgötu 55. Fiskisúpa Fjörugarðsins með blönduðu sjávarfangi á aðeins 950 kr.
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 17. apríl 2007 kl. 12:24 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


