Upplýsingapóstlisti fyrir Vormót 2007
Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 16. apríl 2007
Nú er búið að setja upp upplýsingapóstlista fyrir Vormót 2007. Þetta er gert til þess að auka upplýsingaflæði frá mótsstjórn til almennra skáta. Einnig ef einhver vill koma á framfæri hugmyndum eða kvörtunum um Vormót þá er tilvalið að senda það á vormot@hraunbuar.is.
Til að skrá sig á upplýsingapóstlistann þarf ekki að gera annað en að senda tölvupóst á netfangið vormot2007-on@hraunbuar.is  (ekki þarf að skrifa neitt í Subject né í skilaboð).
Â
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 16. apríl 2007 kl. 11:59 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


