Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 18. mars 2005
Á aðalfundi í gær, 17. mars 2005, voru fimm lagabreytingar samþykktar. Allar voru breytingarnar samþykktar einróma en þrjátíu skátar sátu fundinn. Tvær greinar voru felldar út, tveimur breytt lítillega og einni grein bætt við. Til að sjá lagabreytingar veljið þá meira.
Lög Hraunbúa
Meira:
|
Lagabreyting I
Grein 4.1 felld úr lögum félagsins
Starf félagsins skal byggt upp á flokkastarfi, flokkarnir starfi í sveitum og tvær sveitir eða fleiri með skátum á öllum aldri mynda með sér deildir. Í hverjum flokki skulu vera nálægt sex skátum, en í hverri sveit tveir til fimm flokkar.
Lagabreyting II
Grein 4.3 felld úr lögum félagsins
Skátum er skylt að nota skátabúning við störf sín og setur foringjaráð nánari reglur um notkun hans.
Lagabreyting III
Breyting á grein 3.8 (nú 3.9)
Foringjaráð félagsins skal skipað deildar- og sveitar- og aðstoðarsveitarforingjum auk eins fulltrúa stjórnar [(var aðstoðarfélagsforingja)]. Foringjaráð getur boðið öðrum setu á einstökum fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Fyrsti fundur foringjaráðs skal haldinn eigi síðar en 1. september. Þar skal ráðið kjósa sér formann, ritara og siðameistara. Ritarin gegnir störfum formanns í forföllum hans auk þess að rita fundargerðir. Siðameistari ber ábyrgð á siðum og venjum í skátastarfinu og er öðrum til aðstoðar í þeim efnum.
Lagabreyting IV
Breyting á grein 3.4 um kosningu endurskoðenda
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar.
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga [(var endurskoðenda)].
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.
Lagabreyting V
Ný grein um varamenn stjórnar
Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því að víkja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í stjórn og annar varamaður ef annar þarf að víkja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í stjórn. Víki þrír eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.
Einnig fylgja breytingar á grein 3.4
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar. [Liður h) bætist nýr við]
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.
|
Tengdar færslur:
- Aðalfundarboð – 20. febrúar – kl. 19:00
- Aðalfundur á fimmtudaginn
- Aðalfundur Hraunbúa 2011
- Aðalfundur
- Aðalfundarboð
Þessi grein var skrifuð þann 18. mars 2005 kl. 1:50 f.h.
og er skráð í flokkinn Almennt.
Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista.
Hvorki svör né ping eru leyfð.