Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda

Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 1. febrúar 2004

Farið verður í sveitarútilegur helgina 13. til 15. febrúar næst komandi. Farið verður í Lækjabotna skála skátafélagsins Garðbúa. Mæting klukkan 19.30 föstudaginn 13.

Meira:

Helgina 13. til 15. febrúar

Þema: Hjátrú

Farið verður í sveitarútilegur helgina 13. til 15. febrúar næst komandi. Farið verður í Lækjabotna skála skátafélagsins Garðbúa. Mæting klukkan 19.30 föstudaginn 13., í skálann sem er rétt fyrir utan Reykjavík. Útilegunni lýkur sunnudaginn 15. klukkan 15.00.

Það sem stúlkurnar þurfa að mæta með er nesti, hlýföt og svefnpoki.

Kostnaður við þessa ferð er 2000 krónur en innifalið í því er gisting í tvær nætur og efni fyrir dagskrá.

Skráning fer fram í síma 565-0900 eða í Hraunbyrgi, milli klukkan 16.00 og 20.00 mánudaginn 9, og þriðjudaginn 10. febrúar næstkomandi. Greiða skal þátttökugjald í síðastalagi fimmtudaginn 12. febrúar.

Þær stúlkur sem eiga að vígjast inní skátana 22. febrúar næstkomandi verða að mæta í þessa útilegu til þess að fá að vígjast.

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá sveitaforingja í síma 699-2488.

Með skátakveðju,
Elfa Björg
Sveitaforingi Rauðskinna og Tyrkja-Gudda

Ps. Varðandi nesti. Skal það vera holt og gott :0)

Föstudagur: kvöldkaffi

Laugardagur: morgunmatur, hádegismatur, kaffi, kvöldmatur og kvöldkaffi.

Sunnudagur: morgunmatur, hádegismatur.


Tengdar færslur:

  1. Sveitafundur Raudskinna og Tyrkja Gudda
  2. Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda
  3. Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda
  4. Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda
  5. Dagsferð frestað

Þessi grein var skrifuð þann 1. febrúar 2004 kl. 11:56 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.