Keppnin ógurlega
Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 1. desember 2003
Hin áður auglýsta keppni verður haldin í kvöld, mánudag, og mæting upp í Hraunbyrgi ekki seinna en 18:00 því þá verður keppnin ræst. Keppnin er ætluð flokksforingjum, aðstoðarflokksforingjum og aðstoðarmönnum sveitanna Riddara, Rauðskinna og Tyrkjaguddna.
Meira:
Hin áður auglýsta keppni verður haldin í kvöld, mánudag, og mæting upp í Hraunbyrgi ekki seinna en 18:00 því þá verður keppnin ræst. Keppnin er ætluð flokksforingjum, aðstoðarflokksforingjum og aðstoðarmönnum sveitanna Riddara, Rauðskinna og Tyrkjaguddna. Keppnin er í raun leiðangur um höfuðborgarsvæðið en allar reglur og nánari upplýsingar verða gefnar upp áður en keppnin verður ræst. Ég vil því hvetja alla til að koma og taka þátt því það sem þarf að hafa með er aðeins föt eftir veðri, skátabúningur og svo að sjálfsögðu góða skapið. Að keppninni lokinni fá allir kakó í skátaheimilinu. Ef einhverjar spurningar vakna getið þið haft samband við mig (Jósef) í síma 867-1042.
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 1. desember 2003 kl. 8:35 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


