Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda

Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 9. september 2003

Verður haldinn 20. til 21. september næstkomandi

Meira:

Sveitarútilega Rauðskinna og Tyrkja-Gudda verður haldin 20. til 21. september næstkomandi.
Farið verður í skála Skátafélags Akranes, Skátafell, í Skorradal. Mæting í Hraunbyrgi kl. 9.00 laugardeginum og áætluð heimkoma er 16.00 á sunnudeginum.

Kostnaðurinn við ferðina er 2400 krónur og skiptist þannig, 950 kr. rútukostnaður, 800 kr. skálagjald og 650 kr. matar og efniskostnaður.

Skráning fer fram í Hraunbyrgi hjá Sigu í síma 565-0900 milli 16.00 og 19.00 mánudaga til fimmtudaga eða á hraunbuar@hraunbuar.is, en síðasti skráningar- og jafnframt greiðsludagur er miðvikudagurinn 17. september næstkomandi.

> Nauðsynlegt er að hafa meðferðis:

Skátabúning
Svefnpoka
Snyrtidót
Föt til skiptanna
Hlý föt
Húfu, vettlinga og önnur hlífðarföt.

Með skátakveðju,
Elfa Björg, 699-2488, Sveitarforingi Rauðskinna og Tyrkja-Gudda


Tengdar færslur:

  1. Dagsferð frestað
  2. Óvissuferð Rauðskinna og Tyrkja-Gudda
  3. Ert þú moldvarpa ?
  4. Sveitafundur Raudskinna og Tyrkja Gudda
  5. Myndir úr sveitarútilegu…

Þessi grein var skrifuð þann 9. september 2003 kl. 6:44 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.