Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Samið við skátana

Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 12. nóvember 2002

Í dag kl. 15.00 skrifar bæjarstjórinn í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson og Bergur Ólafsson félagsforingi skátafélagsins Hraunbúa undir samkomulag um niðurgreiðslu á þátttökugjaldi barna 10 ára og yngri og um eflingu æskulýðs- og annars forvarnarstarfs í Hafnarfirði.

Meira:

Markmið samkomulagsins er sambærilegt samkomulagi sem gert var við íþróttahreyfinguna, að gera börnum kleift að taka þátt í æskulýð- og íþróttastarfi óháð efnahag fjölskyldna.

Mikil ánægja hefur verið með samkomulagið sem gert var á grundvelli samþykktar bæjarstjórnar frá 11. júní 2002 og vænta menn mikils af samstarfinu við skátana.

Undirskriftin fer fram í skátaheimilinu Hraunbyrgi við Víðistaðatún.


Tengdar færslur:

  1. Mikil ánægja með útilífsskóla Hraunbúa
  2. Hjólaferð frestað
  3. Skátaskeyti.is
  4. Fermingarblaðið
  5. Við förum í dag austur á Úlfljótsvatn

Þessi grein var skrifuð þann 12. nóvember 2002 kl. 12:57 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.