Til foreldra 9 og 10 ára barna
Skrifað af Vefnefnd Hraunbúa þann 15. október 2002
Þessa daganna er verið að ganga frá samningi milli Skátafélagsins Hraunbúa og Hafnarfjarðarbæjar um niðurgreiðslur á þátttökugjöldum 9 og 10 ára barna í æskulýðsstarfi.
Meira:
| Samningurinn er nánast eins og samningarnir við íþróttafélögin og hljóðar uppá sömu upphæð, þ.e. kr. 2.000.- á mánuði. Fyrir tímabilið september – desember nema niðurgreiðslurnar alls kr. 8.000.- og dregst það frá þátttökugjöldum barnanna.
Til þess að innheimta niðurgreiðslurnar þurfum við staðfestingu frá ykkur um að börnin séu hér í starfi. Sá háttur verður á að í vikunni 21. – 24. október verður á skrifstofu félagsins frammi listi með nöfnum og kennitölum þeirra barna er hér eru í starfi og þurfa foreldrar/forráðamenn þeirra að staðfesta þátttöku þeirra með undirskrift sinni á þessa lista. Það skal tekið fram að þeir er greitt höfðu með krítarkortum, að nótunum var aldrei skilað inn. Þeir sem höfðu staðgreitt þurfa að hafa samband við Sigurð (Sigu) á skrifstofunni til að fá endurgreiddan mismunin. Með skátakveðju, |
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 15. október 2002 kl. 4:02 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


